3. október, 2006 |

Helgarfréttir


Ég og Tanía vorum með stelpupartý síðasta Föstudag, vorum með Þema og auðvitað var það Barbie!! =) Ég var óléttu-Barbie ( nema ég gat ekki smellt bumbunni af eins og óléttuBarbie getur) og Tanía var ´80-Barbie. Við vorum hér 15-18 íslenskar stelpur og allar í brjáluðum gír =). Buðum upp á bleikan fordrykk og skreytum íbúðina með borðum og Barbiedúk!! Tedda og Inda fannst nú frekar asnalegt að hafa svona mikið fyrir þessu. Skildu ekkert í okkur að nenna að skreyta og dúttlast þetta. Þeir sögðu að maður kaupir bara snakk og bjór, þá er allt tilbúið=) Málið er að þetta er munurinn á stelpum og strákum, okkur finnst gaman að vera með svona dúttlerí og þeir vilja hafa allt einfalt.

Síðan á Laugardeginum héldu þeir Pókerkvöld!! Voru hér nokkrir strákar í flottum gír. Þannig að þessi helgi var pínu kynjaskipt heheh... ég og Tanía kíktum bara á meðan til Elísarbetar vinkonu Taníu og spiluðum Phase 10. Það var voða kósý hjá okkur hún var meiri að segja búin að baka fyrir okkur =).

Síðan er Berti og Fanney að koma í heimsókn til okkar næstu helgi. Ætla að vera hjá okkur til mánudags. Það verður voða kósý. Er að spá í að fljúga með þeim til baka til Íslands. Þar sem að ég verð að fara í mæðraskoðun og svoleiðis.

Fréttir af bumbunni:Allt gott að frétta af bumbunni. Held áfram að stækka =) Er komin 29 vikur.Veit ekki hvað ég er búin að þyngast mikið vantar nefnilega vigt. Kemur allt í ljós þegar ég kem heim í næstu viku.

Adios
Halla
Halla skrifaði kl. 10:10
Comment ( 29 )
17. september, 2006 |

Afmælisvika


Ég var svo dugleg á afmælinu hans Tedda, bakaði alvöru súkkulaðiköku, brauðrétt og bakaði í fyrsta skipti 2 marensbotna. Ótrúlega stolt af sjálfu mér, auðvita tókst þetta frábærlega. Enda á maður svo flotta mömmu sem fyrirmynd sem er rosalegur kokkur og bakari. =)

Teddinn bara stunginn af til Manchester. Ekki leiðinlegt fyrir hann þar sem að þetta er afmælisvikan hans. Honum var boðið með Kb-ráðgjöf. Auðvitað er þetta fótboltaferð, fyrsti leikurinn sem þeir fóru á var Millisbro-Bolton (veit ekki hvernig þessi félög eru skrifuð =)) og svo Man. United-Arsenal. Þannig að það er fjörug helgi hjá stráknum. Hann fór snemma á föstudagsmorgun og kemur heim mánudag.

Þannig að það er búið að vera pínu lonley-helgi hjá Höllunni. En hef samt Taníu og Inda hjá mér hihih... Tanía er byrjuð að vinna með skólanum upp í Fields á resturant sem heitir The amerikan. Ég kíkti á hana í vinnuna á föstudeginum með nokkurm vinkonum hennar og stoppuð við þar í heila 5 tíma hehehe...

Fréttir af bumbunni:Allt gott, held áfram að stækka! Á morgun verð ég komin 27 vikur. Spörkin alltaf að verða sterkari og sterkari.

Ég á lítinn frænda sem hefur dálitlar áhyggjur af henni Höllu sinni, hann er 6 ára og finnst hún orðin ansi feit og stór. Hann kom með mér á klósettið um daginn og þegar ég var að girða upp um mig heyrist " VÓóooo hvað rassinn þinn er orðinn stór" og bættir síðan við "og bumban líka". Ég brosti hálf móðguð en var samt að kafna úr hlátri og sagði "takk Fannar". Þá fattaði hann að hann hefði eitthvað móðgað mig og var fljótur að segja " já það er af því að þú ert með barn í maganum. En hann skilur samt alveg af hverju að bumban stækkar því þar er barn, en hann skilur ekki alveg af hverju ég er með svona stóran RASS!!! Deddu systir fannst þetta náttulega fyndnast í heimi...

jæja því miður eru engar myndir komnar. En set þær fljótlega inn.
Bless í bili
Ykkar Halla


Halla skrifaði kl. 13:10
Comment ( 25 )
11. september, 2006 |

Komin til Dk


Þá eru við komin aftur til Danaveldis og erum bara í góðum fíling. Indi og Tanía eru byrjuð líka upp í CBS. Indi sem sagt í Masternámi og Tanía í BS-num og líka það bara vel.

Ég og Teddi fórum í heimsókn til Niels og Margot sem eru vinir Berta og Maggýar. Þau búa rétt fyrir utan Roskilde á svona sveitasetri. Alveg frábært að kíkja aðeins í sveitina. Fengum þar lamb í matin sem var mjög gott en toppar náttulega ekki íslenska lambið hiihihi. Ótrúlega gaman að tala við þau um Ísland þau þekkja svo mörg bæjar nöfn t.d. eins og Hafnarfjörð hehe.

Lítið sem ekkert að gerast hjá okkur. Nema náttulega Theodór Friðbertsson verður 25 ára á morgun, stór strákur. Það er ekkert plan komið fyrir afmælisdeginum, ætlum við gerum ekki eitthvað skemmtilegt.

Í dag er himneskt veður sól og 22 stiga hiti. Maður verður að fara að drífa sig út!!

Fréttir af bumbunni: Í dag er ég komin 26 vikur, mér líður bara mjög vel. Hann sparkar á fullum krafti. Held að hann sé að æfa hægri fótinn fyrir fótboltan. Verður að vera duglegur í boltanum fyrir frændur sína.

Læt heyra í mér núna með styttra millibili
adios
Halla
Halla skrifaði kl. 09:23
Comment ( 32 )
13. ágúst, 2006 |

Madonna!!


Mín fékk flottasta Surprise frá Teddanum í síðustu viku. Hann bauð mér til London og ekki nóg með það þá fylgdi Madonnu tónleikar með !! Þetta var mesta snilld, ekki bara það að hún er flott skvísan heldur var showið svo töff að hálfa væri nóg. Mín var sko í Essinu sínu allan tíman *=). Það er nú líka frekar fyndið hvað margir hommar fylgja henni heheheh... það var svona 70 % hommar á tónleikunum hahah... og Tedda leist nú ekkert á það.

Svo styttist í það að við förum aftur út til Dk. Við förum í byrjun sept. En ég verð örugglega bara í svona einn og hálfan mánuð úti og kem síðan heim. Við ætlum að flytja alveg heim um jólin, því að þá á hann Teddi bara eina önn eftir og sú önn er bara að skrifa loka ritgerðina og hann getur alveg skrifað hana hér á Íslandi eins og úti.

jæja læt heyra í mér seinna
ykkar Halla



Halla skrifaði kl. 22:51
Comment ( 282 )
8. júní, 2006 |

California, USA


Sorrý!
Ég veit að ég er búin að vera löt að skrifa, en þannig er nú mál með vexti að ég er komin með kúlubúa og er búin að vera ógeðslega lasin!!!!!!!!!!!!! æl, æl, æl. Er að hressast enda er ég komin 12 og hálfa viku á leið og er hjá henni systur minni í Californíu með allri fjölskyldunni minni. Við erum búin að skoða Old Sacramento, sem er gamall kúrekabær, ætlum á morgun í Alcatraz og föstudaginn í Six flags sem er skemmtigarður með rússíbönum og fleiru. Við liggjum og sleikjum sólina í bakgarðinum hjá Hafdísi, sem er búin að koma sér vel fyrir í fínu húsi með litla voffanum sínum. Það er svo rosalega heitt að loftkælingin hennar hefur varla við, en það er nú sem betur fer kaldara inni en úti!!! Við komum heim 21. júní og verðum á Íslandi til 30. ágúst.
Ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 02:03
Comment ( 224 )
8. maí, 2006 |

Sól sól skín á mig


Díiii... það er sko komið sumar í Dk. Búið að vera yndislegt veður!! Alveg upp í 20 stiga hita og ekki ský á himni. Ég er búin að vera ansi slöpp núna með eitthverja magahvæsu!! Þannig að ég er ekki alveg búin að njóta góða veðursins nógu vel. Hundleiðinlegt að hanga inni meðan að það er svona gott!

Ég og Teddi kíktum aðeins í Frederiksberghaven í gær. Það var magnað. Það var pakkaður garðurinn af fólki og börnum, allir sitjandi á teppi með nesti. Teddinn nennti nú ekki að liggja lengi í sólbaði! En við tókum með okkur spil og spiluðum aðeins, vorum þarna í svona 1 og hálfa klst.
Teddi fór líka á tónleika með Redioheads í gær!! Það var víst magnað sagði hann.

Tanía er að fara heim á miðvikudaginn, hún er nefnilega að fara byrja í sumarskóla á Bifröst. Indi fer 17 mai hann þarf nefnilega að klára dönskuskólan, hann er orðinn ansi sleipur í dönskunni. Þannig að við verðum bara ein eftir í hálfan mánuð!!

Hafdís systir er á fullu að undir búa heimilið áður en að fjölskyldan gerir innrás á hana. Ég held að Chewey (hundurinn) verður nú ekki alveg sáttur með allan þennan stráka fjölda!!

Svo kom Indi með skemmtilega spurningu hvort við kynnum íslenska þjóðsönginn? Ég verð nú bara að segja að ég kann hann ekki!! Get ekki einu sinni raulað hann !! Ég hefði nú viljað frekar hafa lagið sem maður lærði þegar maður var lítill " Ísland er land þitt bla bla bla bla. Mér finnst það eitthvað svo flott lag og hressandi! Gerir mann svo stoltan að vera íslendingur hehehe... Man að maður söng þetta ótrúlega hátt og með þvílíku stolti í sumarbúðum eða í skólanum. Það er nú alveg fáranlegt að velja svona erfitt lag fyrir þjóðsöng. Frétti að þegar við vorum að keppa við Þjóðverja í fótbolta, þá var útbítt miðum á leiknum til íslendinga með þjóðsöngnum af því að það eru svo fáir sem kunna hann. Þjóðverjarnir hlógu bara víst af okkur. Þetta finnst mér svolítið skammarlegt. Mér finnst að þeir ættu nú bara að skipta um þjóðsöng!!! =)
Ég veit að sumir kunna nú nokkrar setningar í þjóðsöngnum en spurningin er hvort þið kunnið sönginn ? Endilega comment á þetta ! Þætti nú gaman að sjá hve margir kunna hann!=)

later
Halla



Halla skrifaði kl. 09:51
Comment ( 231 )
24. apríl, 2006 |

Eintóm róleg heit!!


jæja það er sko kominn tími á smá pistil hér!!! Það er bara allt í róleg heitum hér á Nimbus, Teddi og Tanía eru búin að vera ótrúlega dugleg í prófum og verkefnum. Tanía mun klára sitt síðasta próf á morgun og Teddi á Föstudaginn. Þannig að það verður eintóm gleði hjá þeim eftir þessa viku!! Svo er eitthvað svaka lokarhóf hjá bekknum hans Tedda á Föstudeginum. Ætli maður kíki ekki smá út það kvöld.

Svo vill ég óska litla stóra frænda mínu honum Þórhalli innilega til hamingju með 18 ára afmælið seinasta laugardag!! hipp hipp húrra =)( Dí Dedda það þýðir bara eitt að þú ert að verða gömul hehehehe!!! )

Annars er búið að vera frábært veður hér!! Byrjað að hlýna og sólin að skína hihihih...

Þvi miður dettur mér ekkert annað í hug að skrifa um þannig að þetta verður bara að duga núna!!

Later
Halla
Halla skrifaði kl. 21:08
Comment ( 247 )
10. apríl, 2006 |

Hæg vinnubrögð hjá Dönum!!


Það er alveg ótrúlegt hvað danirnir eru hægir í öllu!!! Ég er ekki enþá búin að fá útborgað, já einmitt það er 10undi í dag !!!!!!! Af því að ég lét yfirmann minn ekki fá reikningsnúmerið fyrir 1 april þá er allt bara í keyos =) lét hann fá nr. þar síðustu helgi. Tala við hann síðast fimmtudag og hann ætlaði að redda þessu, en nei nei hann er farinn í páskafrí !!!! ok ég hringdi upp á Hotel í dag og bað um gaurinn sem sér um launin. Hann sagði að hann mun hafa samband við mig á morgun..... hvað er málið??Ég skil þetta ekki! Af hverju er ekki bara hægt að redda þessu í dag ??? Ég er að fara vinna á morgun og ætla sko að tala við þennan kall. Nenni ekki alltaf að hringja, held að það sé líka bara sterkara að mæta bara á staðinn.

Við fórum í barnaafmæli um helgina. Hann Andri Sigfús (sonur Helgu systir Inda) er orðinn 1 ára, frekar flottur strákur. Þar var boðið upp á kökur og fínerí. Langt síðan að maður fékk svoleiðis =) Eftir afmælið skelltum við okkur í bíó, sáum myndina Inside man með Denzel Washington og Clive Owen. Hún var alveg mögnuð!! Mæli eindregið með henni!! Róleg en spennandi!! Þetta var nú bara róleg og góð helgi!

Nú styttist í að við komum heim c.a. 2 mánuðir í það =) En það verður nú enginn frá minni fjölskyldu að taka á móti okkur, því þau verða öll í Ameríkunni hjá Hafdísi systur!

Við líka ætlum að leigja íbúðina hér út í sumar fyrir vini og fjölskyldu. Íbúðin er í Frederiksberg, við erum aðeins 7 min. niðri í miðbæ með Metro.Ef þið hafið áhuga endilega hafið samband.

Kveð í bili
Ykkar bestasta Halla
Yll
Halla skrifaði kl. 19:31
Comment ( 232 )
5. apríl, 2006 |

Stórt Suprise


jæja það var nú mikið um að vera seinustu helgi! Við skulum byrja söguna á þegar ég var að labba heim seinasta fimmtudag úr vinnunni voða glöð, því að ég var nýbúin að tala við Helgu vinkonu í símanum og hún og fjölskyldan hennar bara komin í köben. Við mældum okkur mót í mollinu Fields. Nema það að ég ákvaði að fara fyrst heim og setja smá andlit á mig og úr vinnugallanum!!!
Þegar ég var heima hringir dyrasíminn þá segir Tanía ha!! hver getur þetta verið við erum öll hér !!! hihi og Teddinn svarar og það er sagt jeee er Gudrun Hedle hjemme !!! með svaka hreim og Teddi ýtir á takan, hann segir að hann haldi að þetta sé Helga vinkona mín hhmm.... mér finnst það nú frekar skrítið þar sem Helga ætlaði að hitta mig upp í Fields og hún veit ekki heldur addressuna mína heheh þá hringir dyrasíminn aftur og ég svara þá er sagt" hello kan du opne dören" ég ýti á takan og hugsa með mér Vó hvað þetta var líkt Deddu heheh
Nema það að við opnum hurðina hjá okkur og enginn kemur hmmm.... en ég heyri í lyftunni. Ok ég labba fram og segi Halló Helga nema enginn svarar og ég heyri eitthvað bröllt inn og úr lyftunni á 4 svo á 3 , ég kalla aftur hallóoo en enginn svara. Síðan stend ég beint fyrir framan lyftuna og hún opnast !!!!
þá er þetta bara stóra systir mín Dedda og Böddi maður hennar dí mér bregður þvílíkt og segi bara " eru þið ekki að djóka eru þið ekki að djóka " hihihi Eintóm hamingja!!!!!!

Auðvitað var röllt Ströged og Fields fram og til baka!!
Farið út að borða á Jensens Böfhouse og Herreford.

Later Halla
Halla skrifaði kl. 18:49
Comment ( 227 )
24. mars, 2006 |

Rauðglóandi Rass =)


Það er nú búið að vera frekar rólegt þessa viku! Teddi duglegur að læra. Hann er að fara í próf í april. Þannig að hann er aðeins byrjaður að kíkja í bækurnar fyrir það. Ég er bara búin að vinna og gera ekki neitt =)
Ég fór í ljós í gær!! Mín var orðin svo rosalega hvít og ákvaði að skella smá brúnku á mig og setti smá svona gullrótarkrem á mig áður en ég fór inn í ljósabekkinn til þess að auka brúnkuna =) fór í 8 mín. ljós. Þegar ég stóð út úr bekknum fannst mér ég ekki búin að fá nenn lit þá ákvaði mín bara að skella öðrum pening í (þetta er svona sjálfsala ljós) ! Var nokkuð ánægð með árangurinn þegar ég stóð upp í 2 skipti ! Klukkutíma seinna voru við á cafe húsinu í skólanum hans Tedda og fannst mér buxurnar nudda annsi mikið á mér Rassinn og lærinn hehehe skildi ekkert í því . Þegar við komum heim og byrjaði ég að klæða mig í náttfötin fékk Teddi hláturskrampa, ég skildi nú eiginlega ekki hvað væri svona fyndið, nema það að hann snéri mér við og sýndi mér í speglinum hversu rauð ég var =) Greyið rassinn á mér hann var sko rauðglóandi heheh og þvílíkt far eftir g-strenginn og ekki nóg með það þá á þessum g-strengum er hjúmangus miði (miði sem er með merki hvernig má þvo og svona) sem stóð upp úr og getur staðið upp á bak og það var sko farlíka eftir hann heheh ég veit ekki hvert Teddi ætlaði þegar hann sá þetta hahaha alltaf gaman að hlægja af Höllunni !!! Þannig að Rassinn minn er bara búin að liggja í aloverabaði !!! =)

Bestu kveðjur
Ungfrú glóandi
Halla skrifaði kl. 19:09
Comment ( 226 )
18. mars, 2006 |

Fimmtudagsfun


hello
þá er maður búinn að knúsa frænku sina dálítið hihi... hittumst í Födtex (matvörubúð) til að kaupa kjöt á grillið! Auðvitað var kassi af bjór keyptur en við vorum sko að pæla í hvort við ættum ekki að kaupa kassan í búðinni sem er nær íbúðinni okkar, svo við þyrftum ekki að bera hann svona langt!! Þá sagði Teddi voða stoltur hey þetta er allt í lagi , ég er á hjóli!!!! Við dóum af hlátri hahahah eins og hann væri á bíl eða eitthvað hahaha já teddi gæturu bakkað aðeins hjólinu nær fyrir okkur hahahhaha ....
Auðvitað var hjólið notað undir kassann =) Teddinn voða stoltur
Grilluðum nokkur hér saman og fórum svo á ástralskanpub þar sem bjórinn kostar bara 10 kr á fimmtudögum !! En við hækkuðum meðal aldurinn talsvert þar inni hehe !! En ég er náttulega bara 21 ára þannig að það var nú ekki mikil hjálp í mér að hækka þennan meðal aldur =) Hörður fékk bjórpening frá kærustu sinni það voru heilar 20 kr hann var mjög glaður með það, þanngað til að Teddi bað Höllu sína um bjórpening og lét hann fá bréfpening hihi !!
Svo er árshátiðin í kvöld hjá þeim og ég fékk bara einn kúnna til að sminka !! en það er betra en ekki neinn! en auðvitað sminkar maður líka frænkuna =)
jæja það er bara gott veður hjá okkur byrjað að hlýna aðeins en samt vettlinga veður!
venlig hilsen Halla
Halla skrifaði kl. 12:40
Comment ( 189 )
13. mars, 2006 |

Frétt fyrir Þorgerði Hafsteinsdóttur


Rut og Bjarki lentu um hádegi á föstudeginum! Töskunum var hent inn og rétt stoppað í 5 mín í íbúðinni.Auðvitað var hlupið beint í búðir niðri á Strikið en Rutlan keypti nú ekki mikið, hún var að undir búa sig fyrir næstu helgi þar sem að hún er að fara til London þá!!! Bjarki verslaði ekki neitt, hann fattaði það allt í einu þegar það var að loka að hann væri bara ekki búinn að versla hmmm... gleymdi sér eitthvað í búðarápinu.

Við 3 eltum bara Rut út um allt á Strikinu og vorum voða glöð í hvert skipti sem hún fór inn í eitthverja kellingabúð=) því að það var svo ROSALEGA KALT!! Bjarki greyið fékk alveg illt í lappirnar, það er svo langt síðan að hann labbaði svona mikið heheh!!

Föstudagskvöld var alveg brilíant! Ég var svo heppin að spurja yfirmann minn á hvaða staði við ættum að fara á til að djamma og hann var svo frábær að setja okkur á lista á St Petro sem er svaka flottur bar. Maður kemst ekki inn á þennan bar nema að vera á Hotelinu eða á lista. Það er bara ríkt eða frægt fólk þarna eða Models(þar sem að við erum ölll model.is þá komumst við inn hehe). Hotelið mitt er nefnilega í samstarfi við þetta Hotel þá fékk mín 50% afslátt á barnum =) híhí ekki leiðinlegt!! ég skal segja ykkur það að min lá gjörsamlega á barnum (róleg mamma nei ekki að kaupa allan barinn fyrir sjálfan mig=) ) ég fór náttulega alltaf á barinn fyrir alla sem voru með okkur ( við vorum 10 manns ) heheh já þannig að ég var alltaf þarna!! Við fórum líka á undan á Ástrelskanresturant þar sem maður getur fengið Krókudílakjöt og Kengúrukjöt takk fyrir kærlega!!! Mín fékk sér Kengúru og Teddi líka en Bjarki og Indi þorðu í Krókudílinn!! En við smökkuðum sko og meiri að segja Rut Helgadóttir smakkaði líka (ungfrú matvanda). Þetta smakkaðist bara mjög vel!! Krókudíllinn eins og kjúlli og kengúran eins og nautakjöt.

Laugadagurinn var frekar rólegur þar sem allir voru Þunnir með stóru Þ!! Var náttulega aðeins kíkt í búðir =) kíktum síðan í keilu á sunnudeginum (mitt lið vann ég, Rut, Bjarki og Sössi en Tedda lið tapaði hann var með Ásu og Mumma)

Svo er Elfa frænka og Hörður að fara að koma til Dk. á fimmtud. kannski að maður gerir eitthvað skemmtilegt með þeim!!

Annars er voða lítið annað að frétta !! Ég bara að vinna og Teddi alltaf að læra =)

bless í bili ykkar
bestasta Halla


P.s.
Það eru loksins komnar nýjar myndir!! ég biðst afsökunar á mynda leysi , við gleymdum bara mynda vélinni í 3 vikur heima hjá Berglindi vúbbsí
Halla skrifaði kl. 13:54
Comment ( 185 )
6. mars, 2006 |

Allt og ekkert


Mín er bara búin að vera svo upptekin í vinnunni og sofa að min hefur ekki haft tima að skrifa hér á nimbus. Ég er búin að vinna núna í 7 daga streit 8-9 tima á dag! 2 days to go! þá fæ ég 1 dag frí!! Það er nú lítið að frétta af okkur hér í Dk. Teddi að læra á fullu fyrir prófið sitt á miðvikudaginn! Okkur var boðið í grillveislu seinasta fimmtudag til vini Tedda úr skólanum það var bara mjög gaman vorum þar c.a. 10 íslendingar! Við fórum reyndar snemma heima út af því að mín þurfti að vakna snemma fyrir vinnuna (4:45=))

Rutla skutla á afmæli í dag TIL HAMINGJU MEÐ "18" ÁRA AFMÆLIÐ!! HIPP HIPP HÚRRAAAA..... ( Málið er sko að Rut vinkona mín þolir ekki háar tölur hún er samt sko 26 ára en við segjum 18, svo tilkynnti pabbi hennar henni að það eru BARA 48 mánuðir í 30tugt og hún er hreinlega stjörffff... í dag) Hún og Bjarki eru að koma næstu helgi í heimsókn að tilefni afmæli þeirra hann átti 30 ára afmæli 1 mars!!! Mig hlakkar voða til !

Svo helgina eftir það koma Elfa frænka og Hörður pörður ;) þetta blikk er spes til Harðar híhí... þau eru að fara á Árshátið hjá vinnunni hans Harðar! Gista öll á Hoteli og Elfan var sko ekki lengi að því að selja hana Höllu frænku!! hún er svo sniðug þessi elska =) Hún sendi öllum í fyrirtækinu auglýsingu að ég gæti farðað fyrir árshátíðina! jejeje.... gaman gaman það verður örugglega mjög gaman! Versta er að maður getur ekki tekið eins marga og maður vildi, því þetta tekur tíma sko svona smínk 30 min á face-ið!! hehe...


Hafdís systir er í smá sorg! Báðar vinkonur hennar á Beisinu úti í California fengu tilkall, þær eru að fara til Bretlands í okt. Svo lítið erfitt að fara frá fjölskyldunni sinni og svo búin að eignast góðar vinkonur þarna úti og þær bara að fara =( En hún er komin með voða sætan hund sem heitir Chewey svona lítill hundur eins og Paris Hilton á! Pabbi minn kallar þetta reyndar ROTTU hehehehe.... En hundurinn er ekkert voða ánægður með Justin hann urrarrr.... bara á hann þegar Justin leggst upp í rúm við hliðin á Hafdísi hehehhe greinilega búin að eigna sér Dísuna!!!

jæja bless í bili
ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 16:37
Comment ( 30 )
25. febrúar, 2006 |

Vinnan


Þetta er búið að vera pínu erfitt að vakna kl. 4:45 til að fara í vinnuna 3 daga í röð! En þetta venst vonandi =) Ég er að vinna á resturantinum! Tek á móti gestum og tek af borðum fylli á matinn og svona hafa allt snyrtilegt! Siðan þegar morgunmatnum er lokið þá er farið í mínibar tékk (sem mér finnst svolítið skemmtilegt) banka á hurðir og kalla "MÍNBAR" HEHEHEH alveg eins og í bíomyndum og svo þarf að fara með ávextakörfu og vatn í VIP-herbergin (kalla "ROOMSERVIS" )híhí. Svo er ég líka á barnum!! þannig að maður fær að gera ýmislegt. 3 dagurinn var skemmtilegastu því maður er að ná tökum á þessu, ekki alltaf að spyrja " hvað á ég að gera" maður er ekki vanur að standa bara í vinnunni=) Svo var ég svo bright eða þannig að fara í kúrekaskónum minum fyrsta daginn stóð náttulega í 8 tíma Dí veit ekki hvert TÁSURNAR ætluðu eftir vinnuna, þær voru allan vega ekki ánægðar með mig!! Mín mætti sko í strigaskóm deginum á eftir hehe Það eru 2 hommar sem ég vinn með! Báðir frá Tailandi! Frekar fyndnir, hreyfingarnar og svona! Annar er superviserinn minn hann segir að ég sé FAST LÖRNER !!! híhí ekki leiðinlegt að fá svona comment! *Þetta er nú lika ekki erfið vinna!

Sigrún Edda og Rósalie eru hér í Dk. Hittum þær á föstudeginum og löbbuðum Ströged. Síðan koma Rósalie með okkur heim og gisti eina nótt og vildi frekar gista í gestaherberginu heldur en inni hjá okkur!! Held að það hafi verið eitthvað spennandi að vera "GESTUR" í gestaherbeginu algjör snúlla!
Við Teddi erum að fara á tónleika í kvöld með Depeche Mode!! Með vinum hans úr CBS!! Er ekki alveg með hvaða hljómsveit þetta er en samt fer maður sko!!=)

Indi og Tanía kíktu út á lífið í gær! Fóru í partý til bekkjarfélaga Inda! Þau skemmtu sér bara vel! En greyin villtust eitthvað aðeins á leiðinni þangað =( þannig á endanum tóku þau bara leigubíl !

Annars er voða lítið að gerast hérna í Dk.
Bless í bili
Ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 14:49
Comment ( 190 )
19. febrúar, 2006 |

Vinna vinna vinna


°Mín er voða glöð núna. Sótti um vinnu seinasta þriðjudag á Hotel First og Hotel Radisson. Það var hringt í mig á miðvikudeginum frá Hotel First!! Vildi ólmur fá mig í viðtal =) Ég var svo glöð að mín fór að snyrta sig alveg bak og fyrir heheh var heila 3 tíma að því híhí lit og plokk og vax, skrúbb og brúnkumeðferð!! Ætlaði sko að negla þetta! Enda karlmaður að taka viðtalið ekki verra sko, maður brosti sitt blíðasta og blakaði augnhárunum eins og dama =)!!!!!!!!
Ég fékk samt ekki fullt starf af því að ég fer heim í sumar en er bara auka, það er í góðu lagi ! Maður verður bara gráðugur á vaktir =) Ég byrja næsta miðvikudag á að mæta kl. 6: 00 !!! Shit segi ég bara !! ég svefnburkan mikla að vakna kl. 5 :00 um morgun og græja sig taka síðan lest úffffffff..... En góða við það þá er maður búin fyrrr!!!!!!!!!! Hlakka bara til!! Verð að vinna á restirantinum þar og á barnum. Alltaf gaman að prufa eitthvað nýtt!!

Við vorum ein heima þessa helgi! Íbúðin svolítið tómleg svona =) við héldum spila kvöld á fimmtudeginum, fengum strákana sem erum með Tedda í CBS það var rosa gaman!! Skáluðum auðvitað fyrir ný jobbinu og mér var kennt Poker. Ég rústaði sko strákunum, hirti gjörsamlega af þeim peningana =) (Maybe beginners luck)
Á laugadeginum var okkur boðið í Eurovisonparty! Horfðum á Sylvíu Nótt rústa þessu. ÁFRAM SYLVÍA NÓTT !!

jæja elskunnar vildi segja ykkur þessar gleði fréttir!!
ykkar Halla


Halla skrifaði kl. 18:16
Comment ( 255 )
12. febrúar, 2006 |

Helgarfjör!!


Hæ hó, það er búið að vera dálítið fjör um helgina. Stebbi bróðir Inda og Ási vinur hans komu í heimsókn. Alltaf fjör í kringum þá stráka =) þeir máluðu auðvitað bæinn rauðan.
Það var farið í bowling og solleis. Stebbi var bara eins og professinal bowler fella eftir fellu =) Bjórinn getur sko líkað hjálpað manni í þessu, maður segir oft eftir 2 hitta "SVO" heheh.

Við hittum líka Berta pabba á fimmtudeginum, hann var svo flottur á því að bjóða okkur í Lunch á Hotel Hilton. Hann var nefnilega að fara til Þýskalands og milli lenti hér í nokkra tíma!! Síðan kemur hann til okkar á þriðjudaginn og sefur 1 nótt.

Á morgun fer mín í atvinnuHER-leit. So whis me god luck!!!
Ykkar Halla

Halla skrifaði kl. 19:54
Comment ( 208 )
6. febrúar, 2006 |

Hallan með leik!!


Þessi "leikur" er út um allt á blog-síðum og ákvaði að skella þessu hér!! Þið sem sagt copy/pastið spurningunum bara og svarið þeim svo í commenti

1. Hver ert þú?
2. Erum við vinir?
3. Hvenær hittumst við fyrst og hvernig?
4. Ertu hrifinn af mér?
5. Langar þig að kyssa mig?
6. Láttu mig hafa gælunafn og útskýrðu afhverju þú valdir það.
7. Lýstu mér í einu orði.
8. Hvernig leist þér á mig þegar þú sást mig fyrst?
9. Lýst þér ennþá þannig á mig?
10. Hvað minnir þig á mig?
11. Ef þú gætir gefið mér eitthvað hvað myndi það vera?
12. Hversu vel þekkiru mig?
13. Hvenær sástu mig síðast?
14. Hefur þig einhvern tímann langað til að segja mér eitthvað en ekki getað það?
15. Ætlaru að setja þetta á bloggið þitt svo ég geti skrifað um þig?


Allir vera með!! Þú líka =)

Kveðja Halla
Halla skrifaði kl. 20:57
Comment ( 192 )
2. febrúar, 2006 |

Lent og komin heim!!


Halló allir, við erum nú komin til Danmerkur. Þetta var nú meiri ferðin, þegar við komum upp á Leifstöð sáum við að það væri klukkutíma seinkun jejj. Allt í lagi með það maður getur alveg dúllað sér í búðum. Nema svo bætist hálftíma seinkun við =) Loksins eftir 1 og 1/2 klst. bið lögðum við af stað. Það var mikil ókyrrð í loftinu. Sem getur verið svolítið krípí (finnst mér) Svo þegar við áttum að lenda þurftum við að bíða og bíða í loftinu til að fá að lenda greinilega brjálað að gera =) Við flugum bara hring eftir hring eftir hring!!! Vorum ekki komin heim fyrr en eitthvað yfir 21:00.

Það er nú svolítið kalt úti !! Maður verður bara að setja trefilinn og vettlingana á sig =) Það er voða litið núna að gerast. Allir byrjaðir í skólanum á fullu.
Tanía og Indi fara heim 14-16. feb. í brúðkaup til Rannveigar systur Inda !!
Meira hef ég nú ekki að segja nema bless í bili
Ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 13:38
Comment ( 199 )
24. janúar, 2006 |

Brottför til Danmerkur 30.Janúar.


Nú styttist í að við förum út. Við förum 30. janúar. Skólinn hans Tedda byrjar nefnilega ekki fyrr en 31. janúar, fengum sem sagt langt jólafrí =) !! Erum búin að vera í þvílíkum veislum síðan að við komum og eigum eftir að fara í fleiri áður en við förum heim !!! =) Tanía og Indi eru farin út. Allt í góðu standi í íbúðinni. Við höfðum nefnilega smá áhyggjur að fara og enginn í henni í heilan mánuð!!
jæja en ég skrifa meira þegar ég kem út og set myndir inn þá !! Ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 01:42
Comment ( 214 )
17. nóvember, 2005 |

Komin á klakan =)


Ég tók þá ákvörðun að drífa mig bara heim!!! Teddi er að byrja í prófum og verður bara að læra núna næsta mánuð og ég ætla bara vera hérna á Íslandi að vinna. Fá smá pening!!! Þannig að ég er komin HEIM til MÖMMU jejejje!! En sakna Tedda míns strax. =( Var eiginlega að vonast eftir smá snjó en nei enginn snjór á götunum bara í fjöllunum. En manni líður alltaf svo vel að koma heim til Íslands það er nú alveg ótrúlega góð tilfinning =). En Gsm-inn minn er ekki alveg komin í lag þannig ef þið viljið hafa samband við mig er það mömmu sími: 555-2591

jæja elskunnar bless í bili
Ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 21:14
Comment ( 184 )
9. nóvember, 2005 |

Sálin í Köben


Þetta er búið að vera æðisleg helgi!! Systir min og maðurinn hennar komu á fimmtudeginum. Fjölskylda Tedda kom á föstudeginum, Tanía og Krístin á laugardeginum!!!
Það var haldið upp á J-daginn með stæl. Fórum út að borða og svo á pubbarölt.
Á laugardeginum var Sálin það var frábært! Við skemmtum okkur svo vel! Dönsuðum og dönsuðum.
Það voru nátturlega eintómir íslendingar á tónleikunum heheheh en bara gaman! Þeir tóku auðvitað Sódóma lagið meiri að segja 2 sinnum og allir fríkuðu út!
Ég og Guðríður vinkona sungum og sungum með. Reyndum meiri að segja að troða okkur fremst en það tókst nú ekki voða vel hhehehe okkur var bara ýtt aftur til baka heheheh!
jæja verð að drífa mig Teddi býður eftir mér ! skrifa meira næst later Halla
Halla skrifaði kl. 17:08
Comment ( 193 )
1. nóvember, 2005 |

Strákaveldi í Köben !


Það er nú búið að vera meira strákaveldið hérna hjá okkur!! Ekki meira né minna en 4 strákar sem voru í heimsókn hjá okkur um helgina og auðvitað brjálað stuð á þeim =)

Við fórum í Halloweenparty á laugardagskvöldinu og skemmtum okkur alveg konunglega vel. Ég og Tanía vorum sem ´80 gellur en breytumst um kvöldið í Sylvíu Nótt ( leikona á Skjá 1) Teddi var Elvis P. Indi og Stebbi bróðir hans voru kúrekar =) Ási vinur Inda var indjáni, Arnór var Dauðinn ( gaurinn með ljáinn) og Þórhallur var bleiki partusinn! Þetta var haldið á Amagerkolleginu þannig að þetta vorum eiginlega bara íslendingar!! En brjálað stuð! Meiri segja fórum við í limbó og Tanía er svo liðug að hún varð í 1 sæti fékk í verðlaun Star Wars sverð =) og ég varð í 2 sæti heheheh (við erum nátturlega ekki voðalega hávaxnar =) báðar 164 cm hehehe) Teddi stirði var fljótur að detta úr leik heheheh ég held að hann þarf að fara gera eitthvað í þessu! Hann getur varla klætt sig í sokka heheh .

Svo er annar eins pakki að koma til okkar næstu helgi! Hlakka hrikalega til!! Stóra systir mín og stóri bróðir minn eru að koma á fimmtudaginn! Maggý mamma og Palli bró + Sigurborg. Svo er Guðríður vinkona að koma á morgun ! jhiii allt að gerast!

J-dagurinn frægi er á föstudaginn! Þeir sem ekki vita hvað er J-dagur það er fyrsti dagurinn sem er verið að selja Jóla-tuborg Danir halda mjög mikið upp á það!! Það byrjar nákvæmlega kl. 20:59 á föstudagskvöldinu, það verður brjálað stuð á öllum pubbum!! =)

En á laugardaginn er aðalkveldið !!! Þá er Sálin hans jóns míns með ball hérna úti í Köben !! Auðvitað förum við öll! Mamma hans Tedda er sko þvílíkt búin að pússa ballskóna !! Það verður örugglega teknir nokkrir snúningar með henni á dansgólfinu =)

Jæja núna verðum við að fara að þrífa þessa strákafýlu;) út og gera hreint og fínt fyrir næsta partý!

Heyrumst seinna
ykkar Halla

P.s. það eru komnar nýjar myndir

Halla skrifaði kl. 19:30
Comment ( 209 )
28. október, 2005 |

HALLOWEEEN !!!


Jæja núna eru töffararnir komnir og eru voða glaðir að vera komnir til Dk. Arnóri finnst hann svo frjáls =) (engin mamma að nöldra heheh) Svo í kvöld koma Stebbi (bróðir Inda) og Ási vinur hans. Þannig að það verður stuð hjá okkur. Fullt hús af strákum!!!

Á laugardaginn á Tanía 23 ára afmæli! Við ætlum að fagna afmælinu hennar í Halloweenpartyi sem okkur er boðið í"!!! Við erum eiginlega búin að ákveða búninga =) Ég ætla að vera ´80s gella, Tanía það sama eða dalmodie hundur , Arnór verður dauðinn (gaurinn með ljáinn) og Þórhallur bleikipartusinn!! En stóru stákarnir eru ekki búnir að ákveða sig heheheh! Þetta er víst árlegt partý! Það verður fullt af íslendingum þarna.

Við Indi förum í dönskupróf á þriðjud.og miðvikud. !!! Vonandi höfum við lært eitthvað í þessum kúrs! =)

jæja bless í bili
Halla
Halla skrifaði kl. 11:50
Comment ( 187 )
23. október, 2005 |

Bowling


Jæja ákvaði að koma með litla fæslu hérna, það styttist í prófið hjá Tedda! Hann er búinn að vera ótrúlega duglegur að lesa. Pínu stress komið í kallin.
Við hin 3 fórum í keilu í gær, voða gaman ég vann 1 leik hehehe af 3 leikjum. Maður þarf víst að panta braut fyrir laugadaga með viku fyrirvara !!! En við lékum bara heimsku íslendingana og fengum eina braut =) Tanía segist "næstum" hafa unnið alla leikina (eða þannig hún skít tapaði öllum). Þetta var smá tilbreyting að fara út fyrir okkur af því að við erum eiginlega bara búin að hanga hérna inni í vetrarfríinu okkar.
jæja later Halla

Halla skrifaði kl. 16:34
Comment ( 2 )
16. október, 2005 |

Róleg helgi


Jæja þá er helgin á enda, þetta er búin að vera róleg helgi. Tanía er búin að vera á fullu í próflestri, fór í prófið í gær og held að henni gekk bara ágætlega. Teddi er núna að byrja í próflestri fer í prófið á mánudaginn eftir viku.

Nú styttist í litlu frændur mína. Hlakka ógurlega til að fá þá. Þeir eru nú ekki litlir lengur Þórhallur er 17 að verða 18 ára og Arnór ný orðin 14 ára. Þeir koma 26. okt. verða í viku hjá okkur.

Það er byrjað að kólna mikið en ekki byrjað að snjóa eins og heima. Það er eins og Danmörk sé svona 1 og hálfu mánuði eftir okkur í veðri heheh það er núna haustveður. Laufin byrjuð að gulna og sólin lágt á lofti en logn c.a. 10-15 stiga hiti.

Jæja bless í bili
Halla

Halla skrifaði kl. 14:28
Comment ( 199 )
12. október, 2005 |

Siðferðis spurning


Próf!

Í þessu prófi er eingöngu ein spurning, en hún er mjög mikilvæg. Ef þú svarar í fyllstu hreinskilni muntu komast að því hvernig siðferðiskennd þín er byggð upp. Í prófinu er velt upp algjörlega uppskáldaðri stöðu og þú þarft að taka afstöðu.


Mundu að svarið verður að vera hreinskilið.Vinsamlegast skrollaðu rólega niður og hugsaðu um hverja línu vel og vandlega.


Þú ert í Texas. Í Houston nánar tiltekið. Það ríkir í kringum þig mikið öngþveiti, því á hefur skollið mikill fellibylur og orsakað hræðileg flóð.


Þú ert ljósmyndari, þú vinnur hjá stóru dagblaði og ert í miðju þessarar hryllilegu hringiðu.


Staðan er svo að segja vonlaus.Þú ert að reyna að taka bestu myndir ferils þíns.Það er brak úr húsum og fólk allt í kringum þig, fljótandi í vatninu. Sumir dragast undir og koma ekki aftur upp. Náttúran sleppir lausum eyðileggjandi krafti sínum.


Allt í einu sérðu mann berjast um í vatninu nálægt þér. Hann berst fyrir lífi sínu og reynir á örvæntingarfullan hátt að halda höfðinu upp úr vatninu.


Þegar hann flýtur nær þér finnst þér að þú eigir að kannast við hann.Það rennur allt í einu upp fyrir þér hver hann er.Þetta er George W. Bush!Á sama tíma sérðu að ólgandi vatnið er um það bil að færa hann í kaf... að eilífu.


Þú hefur tvo valmöguleika:Þú getur bjargað lífi G.W.Bush,EðaÞú getur tekið myndir sem myndu án efa vinna þér inn Pulitzer verðlaun. Myndir, sem sýna dauða valdamesta manns í heiminum í dag.


Svo hér kemur spurningin, og mundu að þú verður að svara henni í fyllstu hreinskilni:




















Hvort myndirðu velja hágæða litafilmu eða klassískan einfaldleikann sem svarthvítar filmur bjóða upp á?
Tania skrifaði kl. 13:32
Comment ( 200 )
8. október, 2005 |

station helgi!! Agnes í heimsókn


Jæja þá er Agnes sæta í heimsókn. Hún kom hingað á fimmtudaginn og það er búið að vera stuð á okkur síðan. Fórum beint á strikið og sátum þar í góða veðrinu :) Búið að vera hátt í 20 stig hér í Danaveldinu, ekki slæmt :)
Fórum svo um kvöldið á rosa kósý stað sem Agnes var að vinna á þegar hún bjó hér. Hann heitir Italiano :) Þar borðuðum við voða góðan mat og fengum Kampavín um leið og við komum ,, frítt thaha :) Voða kósý kvöld sem endaði svo með að við Agnes og Teddi fórum í bæinn um kvöldið. Halla og Indi urðu eftir þar sem þau urðu að mæta í skólann um morguninn,, svo samviskusöm :)
Föstudagurinn var svo voða kósy líka, Hittum Fannar frænda hans Tedda og hans hárgreiðslukrú. Fórum á jassbarinn og tekinn smá snúningur en bara snemma heim :)
í kvöld ætlum við að elda góðann mat eins og okkur einum er lagið haha ( svo miklir kokkar) og gera kvöldið voða voða skemmtilegt :) Indi reyndar er barnapía í kvöld fyrir Helgu og Gauta, ekkert leiðinlegt að passa það barn,, 6 mánaða perla sem við elskum öll hér í Nimbusparken :)

Jæja fínt í bili...
Later. Tanía
Halla skrifaði kl. 15:03
Comment ( 189 )
4. október, 2005 |

Góð þjónusta í Dk!!! nnneee


Byrjuð í nýjum klassa í dönskunni. Kennarinn er frekar strangur.Sem er bara fínt held ég! Það er BARA töluð danska í tímanum, nema nátturlega þegar við skiljum ekki!! Við erum 13 í bekknum og af því eru 4 englendingar. En við tvö erum einu íslendingarnir =)
Okkur var boðið út að borða í gærkvöldi. Sigfús (pabbi Inda) og María eru í köben og voru svo elskuleg að bjóða okkur út að borða!!! Þetta var voða kósý en vorum ekki alveg nógu ánægð með þjóninn. Ef það er eitthvað sem vantar hér í DK þá er það þjónusta!!!
Ég skal segja ykkur skemmtilega sögu um dæmigerða þjónustu hérna. Þetta gerðist bara út í búð hérna hjá okkur, ég og Tanía drifum okkur 5 mín fyrir lokun inn í búðina til að kaupa nokkra hluti!!! Nema það að eftir smá stund kemur öryggisvörðurinn með sína fína lyklakippu (með svona 20 lyklum) og labbar á eftir okkur! Réttir hendina upp með lyklunum og byrjar að hrista hana gling gling gling gling gling á eftir okkur, það var sem sagt að reka okkur út heheh við erum að loka núna segir hann frekar fúll =( nema við urðum svo stressaðar og hlógum og hlógum af þessu !!! En það voru nú fleiri en við inn í búðinni en hann labbaði alveg á eftir okkur að kassanum gling gling gling . Nema það ohhh við bjánar föttum að við erum ekki með nóg pening bara með 100 kr dk og isl-kort (sem þeir taka ekki). Típísk ég !!! Öryggisvörðurinn stendur fyrir framan kassan og hristir höfuðið! Ég segi við kassadömuna augnablik við þurfum að sortera úr hvað við þurfum nauðsynlega því við erum ekki með nóg! Guð þau tvö urðu frekar fúl og stelpan segir WILL YOU HURRY UP please með þvílíku atetjútti !!! Við urðum svo hneykslaðar og pirraðar yfir þessu glingi og framkomu áttum ekki til orð. En þetta er víst bara eðlilegt hér í DK. Meðan við heima þá fær maður að klára að kaupa inn en hætt að heypa fólkinu inn!!!!

Svo er allt brjálað að gera hjá okkur í kringum Sálarballið. Við eigum ekki meira né minna en að kaupa 20 miða fyrir þá sem eru að koma til Dk í nóv. heheheh

Loksins komin með kapel tv og okkar eigin net, hætt þessum netþjófnaði !!! Nú bíðum við bara eftir heimsímanum og skáp frá ikea sem er búið að taka mánuð. Það tekur allt sinn tíma hér í Dk danirnir eru ekkert að drífa sig.

jæja bless i bili
ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 13:50
Comment ( 196 )
30. september, 2005 |

Leiðinda fréttir !!


Ég komst ekki inn í fótaaðgerðarskólan eftir áramót ohhh. Frekar fúlt!!!!! En maður verður að líta á björtu hliðarnar á þessu ... sem eru ???? hummm....
Hún sagði að mig vantaði meiri dönskukunnáttu og skyndihjálp !!! Endilega að sækja aftur fyrir næsta sept. þá væri danskan orðin örugglega fín og ég get bætt við mig skyndihjálp hér í Dk. =) Ég er samt búin með 16 tíma í skyndihjálp en það er greinilega ekki nóg í Dk!!! Maður þarf 30 tíma =( og svo þarf ég að hafa skírnarvottorð, það þykir mér frekar fyndið þegar maður er að sækja um skóla.

Ég og Teddi erum alein heima þessa helgi. Tanía og Indi fóru til Jótlands að hitta vinkonu sína. Þannig að það verður pínu tómlegt heheh !!!

jæja bless í bili vildi bara segja ykkur þessar leiðinlegu fréttir

p.s. endilega skrifið í gestabókina svo við getum séð hverjir kíkja á okkur . EKKI VERA FEIMIN !!!
Halla
Halla skrifaði kl. 15:10
Comment ( 196 )
26. september, 2005 |

Vinátta getur verið yndisleg


Ég held að það er ekki hægt að biðja um betri vinkonu !! Rut vinkona mín kom óvænt í heimsókn seinasta fimmtudag,í tilefni 25 ára afmæli míns. Hún stökk upp í rúmið og vakti mig !! En ég hélt að þetta væri Indi að fíflast í mér af því að hann er soddan stríðnispúki heheheehe. Eg var ekkert smá glöð (og úldin) =) .

Við fórum á djammið á laugardagskvöldið buðum í smá afmælispartý ! Við vorum 7 í afmælinu heheh (þekkjum svo marga í Danmerku ) Teddi bjó til skemmtilegan bíóleik sem gerði mikla lukku. Nema ég vann ekki hoooo ...

En á Sunnudeginum (afmælinu) fórum við í Tívolíið. Það var geggjað fórum í öll skemmtilegustu tækin, líka í 1 barnatæki hehehe ! Nema það er eitt tæki sem heitir Turninn hann er rosalegur. Ég varð hrikaleg hrædd þorði bara að fara eina ferð. Meðan að Teddi,Rut og Indi fóru 3 sinnum. Algjörir spennufíklar !!!

Það verður ansi mikið af fólki hjá okkur í endan á okt og byrjun nóv. Vinkona Taniu kemur 27 okt., Arnór og Þórhallur koma 26 okt og verða í viku!!! Síðan koma Maggý mamma, Palli og Sigurborg 4 nóv. Síðan Dedda systir og Böddi vinur minn lika!! "Sálinn Hans Jóns Míns" verður að spila á skemmtistaðnum "Vega". Þannig að allir verða í jólabjórnum hehehe. Ég hlakka hrikalega til !! Þetta verður bara gaman.

jæja bless í bili, skóli á morgun verð að fara
Halla
Halla skrifaði kl. 22:57
Comment ( 224 )
19. september, 2005 |

Frábær helgi


Það er búið að vera voða notalegt hjá okkur 6 um helgina, sérstaklega hjá okkur 4 heimalingunum.Okkur leið nú eins og gestum, hún Monika er nefnilega alveg eins og Monika í "Friends" þeir sem ekki þekkja friends þá er hún mjög skipulögð og finnst ekkert skemmtilegra en að þrífa. Hún gat ekki notið þess að vera í fríi hún var alltaf að laga til og þríf heheh ekki leiðinlegt að fá hana í heimsókn!!! Hún er svo skipulögð að hún var búin að prenta innkaupalistan úr tölvunni það sem hún ætlaði að kaupa og búin að finna ýmsar búðir á netinu, með það á blaði heheh alveg ótrúleg! Mér finnst þetta bara FRÁBÆRT þar sem ég er svo óskipulögð þá ætti ég að taka hana til fyrirmyndar. Svo þegar listinn var búin þá keyptu hún ekki meira! Þetta kunnu við systurnar ekki það er meira þegar innistæðan er búin á kortunum þá verðum við að hætta híhíhí

Fórum á djammið á föstudaginn á stað sem heitir Vega þar sem Sálin á að spila í nóvember!!! Nokkuð nettur staður er á 3 hæðum og nátturlega af og til spiluð dönsktónlist, heyrði samt aldrei í honum fræga Kim Larsen. En við náðum að tjútta smá!!! Við stelpurnar voru reknar úr jökkun af dyraverðinum sagði að við máttum ekki fara upp nema að setja hann í fatahengið ! Mér fannst þetta svo asnalegt að ég fór náttúrlega að spyrja hann af hverju, hann svaraði vegna ELDHÆTTU =) hhuuummm....


Tanía er að fara heim um helgina, verður að mæta víst í skólan. Hún og Teddi eru búin að vera voða dugleg að læra um helgina þótt að við vorum með gesti!!! Meðan að ég bíð bara eftir að danskan byrji. jæja bless í bili kv. Halla


Halla skrifaði kl. 23:53
Comment ( 179 )
16. september, 2005 |

Grétar og Monika eru komin í heimsókn


jæja ákvaðum að henda léttri færslu hérna! Voða lítið að frétta, gerist nú ekki mikið á virkum dögum. Grétar og Monika komu áðan og eru lige glad að vera komin til Köben. Monika ætlar bara að versla versla versla hehehe hún er nefnilega búin að vera að safna penge og Grétar ætlar að vera í dýrabúðum á meðan.
Við Tanía erum búnar að vera mjög duglegar að elda og sprikla í ræktinni þar á milli, þvo þvottinn þar sem það er ekki Hótel Mamma lengur =) svoltið góðu vön híhíhí
Venlig hilsen Halla og Tanía
Halla skrifaði kl. 00:51
Comment ( 186 )
13. september, 2005 |

Teddi átti afmæli


Halló allir í dag var 12 september sem þýðir það að hann Theodór Friðbertsson átti afmæli. Hann er orðinn 24 ára gamall. Dagurinn í dag var ekki beint mikill afmælisdagur hjá honum, hann var eiginlega bara að læra og í ræktinni en ég reyndi að fá hann til að laga aðeins til með mér en hann sagði að hann væri svo sérstakur í dag af því að hann á afmæli þá þyrfti hann ekki að gera svoleiðis uusssss... hvernig ólstu þennan dreng upp Maggý heheheh en þetta virkaði á mig, ég leyfði honum að sleppa í þetta skipti af því að hann brosti svo fallega til mín =) en um kvöldið héldum við upp á afmælið og heppnaðist mjög vel við þekkjum nú ekki voða marga hérna í Danmerku þannig að við hættum við afmælisveislu !!! Fórum frekar út að borða á Jensen böffhus sem elda alveg meiri háttar steikur. Þar sem hún Ella vinkona Deddu systir stoppaði í Kopen um helgina buðu við henni og manninum hennar Kidda með. Teddi talaði svo vel um eitthverja steik að allir fengu sér sömu steikina svo fékk Teddi afmælis ís=) Síðan var haldið heim og borðað köku ( sem ég bakaði á meðan Teddi, Indi og Tanía voru í ræktinni að svitna!!!) og opnað PAKKA. Þegar við vorum búina að kveðja Ellu og Kidda fóru Teddi og Indi beint í tölvuna að keppa í Fifa street þeir eru frekar háðir þessu klukkan er nefnilega að verða 2 um nótt!!

Á fimmtudaginn koma Grétar og Monika til okkar og verða í nokkra daga! Alltaf gaman að hafa gesti !!! Ætli við förum þá ekki í Tivolíið um helgina því það fer örugglega bráðum að loka. jæja bless í bili ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 00:18
Comment ( 233 )
7. september, 2005 |

Einn góður


Maður nokkur var staddur í Hagkaupum að kaupa sér kjúkling þegar gullfalleg kona, sem stóð við kælinn, veifaði í hann og brosti til hans.
Hann varð hálfvandræðalegur, en gekk til hennar og spurði hvort þau þekktust. "Já, ég er ekki frá því að þú sért pabbi eins stráksins míns" svaraði hún.
Varð nú okkar maður heldur betur vandræðalegur, hrökk allnokkuð við og stamaði klúðurslega út úr sér

"ha... ert þú stripparinn á Bóhem sem ég dúndraði í steggjapartíinu mínu fyrir framan alla vini mína og spreyjaði með þeyttum rjóma meðan þú tróðst agúrku upp í rassgatið á mér... ó mæ god, ég þekkti þig ekki!"
Konan svaraði svipbrigðalaust:

Nei, ég er umsjónarkennari sonar þíns!"
Halla skrifaði kl. 12:33
Comment ( 186 )
6. september, 2005 |

dönskutest


Dagurinn í dag byrjaði með þvílíkum harsberum o my god!!! Hún Tania dró mig í body pumping í gær og ég svitnaði eins og svín náttúrlega því ég hef ekki hreyft mig í 1 ár eða svo og auðvitað fékk ég þá þessar hrikalegu harsberur að ég get valla gengið upp stiga eða niður þá án þess að stynja =)
Kl. 14 fórum við í dönskutest i studieskolen þetta er svona stöðupróf sem segir okkur í hvaða tíma við eigum að fara í !!! Viti menn Halla og Tania eru jafn klára í dönsku heheheh fórum beinustu leið í BYRJENDAHÓP HEHEHEHHEH góðar í dönskunni!! Þar sem ég bjó í danaveldi áður í 4 mánuði er greinilegt að ég lærði ekki mikið dönsku =(
Síðan fórum við bara að rölta um Strikið sem allir aðrir íslendingar eru! Nei í alvöru það er örugglega annar hver maður þar íslendingur. Fór inn í HogM kids því hann Fannar litli frændi var að biðja um vesti sem er með myndum á með hauskúpum !! það er svo inn að vera með eitthvað hauskúpu eða eld þegar maður er bara 5 að verða 6 ára töffari. Kíktum í nokkrar aðrar búðir en keyptum ekki neitt ótrúlega stolt af mér sérstaklega að ég hafi verið með Visakortið í veskinu úfff ! jæja bless í bili ykkar Halla
Halla skrifaði kl. 20:25
Comment ( 192 )
1. september, 2005 |

Danaveldið í góða veðrinu :)


Núna er íbúðin að verða nokkuð fín.. búið að vera á fullu að taka upp úr kössum og raða. Gluggatjöldin eru á leiðinni upp eftir 1 öl eða svo segja handymennirnir á heimilinu :) Teddi byrjaður í skólanum, sem virðist ekkert vera annað en djamm, þynnka og meira djamm :) Við ætlum í dönsku nám sem við fáum frítt þar sem við erum danskir ríkisborgarar haha :) Hér er sól og blíða, 20-25 stiga hiti...kvörtum ekki yfir því. Fréttum að heima væri ömurlegt veður...æjæjæjæj muahahaha.... það þýðir bara að þið verðið að koma til okkar í góða veðrið í heimsókn í nýja gestaherbergið okkar sem Elfa og Hörður " vígðu" :)
Jæja...bless í bili
Halla og Tanía.
Halla skrifaði kl. 11:15
Comment ( 222 )
17. ágúst, 2005 |

Elsku krúsídúllurnar mínar!


Hér er smá þannig að við getum fylgst vel með ykkur :0)

Knúz,
Elfa Björg og Hörður Már
Teddi skrifaði kl. 00:28
Comment ( 200 )
14. júlí, 2005 |

Styttist í Danmerkurferðina


Við erum á fullu núna að leita af íbúð í Danaveldi. Flytjum út líklegast svona 20 ágúst vá það er svo stutt þangað til!! Við ætlum að leigja með Inda og Taniu þau eru líka að fara í nám Við erum ekki enn búin að fá íbúðina hérna heima það gerist ekki fyrr en eftir 2 vikur. Okkur vantar líka leigjundur þar ohhh en þetta er allt að gerast! Teddi byrjar í skólanum í endan ágúst og ég ætla að reyna að komast inn í fótaðgerðaskólan eftir áramót. Læri bara dönskuna á meðan og vinn eitthvað jæja bless í bili
Teddi skrifaði kl. 00:31
Comment ( 194 )